Ég er aðeins búin að vera að hlutsa á jóladiskinn með Baggalút -
snilld snilld snilld!!! Hver annar væri á háa C-inu að syngja
um skæri og glimmer

En ég kemst ekki hjá því að velta aðeins
fyrir mér hvort þeir séu í raun að syngja um eigin upplifun af
jólunum... og ef svo er þá eiginlega vorkenni ég þeim pínulítið.
Ekki af því að steikin brann við, súpan eyðilagðist eða það
kviknaði í blokkinni - heldur eru alltaf allir að drekka! Það
er bara í næstum því hverju einasta lagi áfengi um hönd

Í
jólaboðinu á annan í jólum eru allir þunnir - hver dettur í það á
JÓLADAG

Amma er með kaffi og grand, þeir fá sér sjérrí
áður en þeir skella sér á rjúpu, í einu laginu gat hann ekki keypt
neinar jólagjafir eða tré eða neitt því hann datt í það í
skötupartýi

Sem mér finnst endalaust fyndið því ég fer alltaf í
skötupartý - HJÁ ÖMMU! Fólk mætir í jólamatinn og það er varla
komið inn úr dyrunum áður en það er búið að bjóða því Campary í
orange - CAMPARY!!! Ok ef það væri rauðvínsglas með matnum eða
eitthvað en hver sötrar bara campary svona að dunda sér á
aðfangadagskvöld!!! Er þetta virkilega staðreyndin - eru jólin
svona hjá fólki? Bara afsökun til að fá sér í glas? Mæli þá með að
þið prófið hina leiðina, jólaboðið á annan í jólum verður bara svo
miklu bærilegra ef mar bætir ekki ofan á það þynnku og þreytu líka!